Kriki sumar 2006
18. maí 2006 klukkan 04:56
Opnun í Krika verður laugardaginn 27. maí. Þá mun Brúðubíllinn koma og sýna fyrir börnin eins og fyrri ár

Í sumar verður opið alla virka daga frá 13 - 19 og um helgar 11 - 21. frá og með 29. maí.
Á föstudögum kl. 17.00 verður tendrað upp í grillinu og grillaðar pylsur
Á sunnudögum kl. 15.00 verða bakaðar vöfflur
Vaskt lið sjálfboðaliða hefur tekið að sér að hafa opið í paradísinni okkar Sjálfsbjargarfélaga.
Hægt verður að senda okkur tölvupóst á netfangið kriki@best.is og láta setja sig á póstlista og fá senda dagskrá jafnóðum og hún verður til
Ýmsar uppákomur verða í sumar svo sem bátadagur og Haladagar sem og ýmislegt sem enn er í vinnslu.
Allar upplýsingar koma hér inn jafnóðum