Leit

Voriđ er komiđ í Krika

09. maí 2007 klukkan 23:38

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Krika síðustu vikur. Verið er að leggja lokahönd á tenginguna á húsunum og nýja pallinum.

Enn vantar fé uppá til að klára þetta og því hefur hún Kristín R. Magnúsdóttir blásið til fjáröflunar til að fjárfesta í draumaískápnum á uppstigningardag 17. maí kl. 17.00 til 19.30 í félagsheimili Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu Hátúni 12. En þeir eru eigendur Krika.

Jóna Marvins ætlar að elda dýrindis GÚLLASSÚPU eins og henni einni er lagið. Brauð og molasopi fylgir. Þetta selja þær stöllur á 600 kr og 300 kr fyrir börn. Meira að segja ein frí ábót. Húsið opnar kl. 16.45.


Ágóðinn rennur að sjálfsögðu óskiptur til kaupa á ískápnum allir vinna sjálfboðavinnu.

Til að auðvelda hráefnisútreikninga er fólk beðið að skrá sig í gúllassúpuna á skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 551-7868 og
annakristin@sjalfsbjorg.is og eða í síma 865-6706 eða stinar@isl.is í síðasta lagi mánudaginn 14. maí 2007

Ég skal svo reyna að komast næstu daga með myndavélina uppí Krika og setja inn nýjar myndir

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur