BÁTADAGUR, sunnudaginn 12 ágúst
10. ágúst 2007 klukkan 15:24

Í fyrra kom margmenni og fór á vatnið í hinum ýmsu bátum. Naut náttúrunnar og félagskaparins. Allt tókst eins og best var á kosið því endurtökum við leikinn og höfum svipað snið á deginum.
Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að fá heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í nýja húsinu okkar. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.
Tilvalið tækifæri til útiveru og samvista í paradís Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu KRIKA. Allir eru velkomnir. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði. Ath. tökum ekki kort.
Hér á undirsíðunum til vinstri má finna allar nánari upplýsingar um Krika svo sem staðsetningu, verðskrá, náttúru og hvað eina.
Opið verður frá 11.00 til19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Myndir frá bátadeginum í fyrra má sjá HÉR
Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira.
Sjáumst hress