Dularfulla vatnshvarfiđ
30. maí 2006 klukkan 03:12
Í Krika er nú hafið mikil leit að vatninu. Kalda vatnið hvarf á dularfullan hátt fyrir helgi og hefur ekkert til þess spurst síðan.
Í dag fór föngulegur hópur frá Vatnsveitu Kópavogsbæjar í ratleik en fann hvergi vatnið. Málið er allt hið dularfyllsta. Ýmis tæki og tól voru notuð við leitina án árangurs. Heil rúta fullbúin dularfullum tækjum og tólum kom á svæðið, grafin var djúp hola en en allt var í sóma þar í neðra. Allt er í sóma inn í húsi líka. Pallurinn var rifinn upp á parti en þar reyndist líka allt vera í besta standi.
Sérsveitin spígsporaði um allt land Krika og nágrennis í leit að orsökum dularfulla vatnshvarfsins. Að lokum yfirgáfu þeir svæðið og sögðust koma aftur á morgun eftir góðan draumasvefn þar sem lausnin kæmi fram. Vonandi gengur það eftir.
Af öðrum atburðum dagsins í Krika þá voru fuglarnir duglegir að syngja og höfðu betur en skarkalinn frá byggingasvæðinu sem er farinn að nálgast ískyggilega.
Slatti af börnum lék sér við vatnið og nokkrir renndu fyrir fisk. Einn hestur fældist svo við tól sérsveitarinnar að hann henti knapa sínum af baki en sá slapp án meiðsla. Guði sé lof.
Áframhald ratleiksins hefst kl. 13.00 á morgun þriðjudag svo allir skarpir með nef fyrir vatni eru hvattir sérstaklega til að koma í Krika og taka þátt í leitinni.