Leit

Dularfulla varnshvarfiđ frh.

31. maí 2006 klukkan 17:54
Ekkert bólar enn á vatninu og hið undarlega gerðist að vatnsveitukallarnir eru líka horfnir. Uppi eru sögusagnir um hulduher sem hafi numið brott kalda vatnið og starfsmenn Kópavogsbæjar til að mótmæla byggingaframkvæmdum í nágrenni Elliðavatns. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Í gær kom fjölmenni í Krika en enginn hafði áhuga á að leita að vatninu heldur á því að komast á vatnið. Þar var á ferð ma. fríður flokkur Sjálfsbjargarfélaga og Kjartan J. Hauksson hetjan okkar, sem var að skipuleggja bátadaginn sem fyrirhugaður er 15. júlí nk. Verið er að leita uppi báta og mannskap í verkið og gengur vel. Kjartan er að viða að sér efni til að gera við trébryggjuna og ýmis áform voru reyfuð. En nánar um það seinna.

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur