Sjálfsbjörg á höfuđborgarsvćđinu 50 ára
24. júní 2008 klukkan 23:30
Föstudaginn 27. júní verður Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu 50 ára. Af því tilefni ætlum við að hittast í Krika kl. 17.00 og gleðjast saman. Ekki verður um neina skipulagða dagskrá að ræða. Grillið verður heitt og þeir sem vilja geta grillað annars verður boðið uppá hefðbundnar pylsur að venju. Kaffi og með því verður í boði félagsins.
Eiginleg afmælishátíð verður síðar í sumar í Krikanum og verður það auglýst nánar þegar nær dregur