Opiđ í september og Kjötsúpudagur
Í september verður opið í Krika sem hér segir:
Föstudaginn 4. sept. kl. 14.00 - 18.00, grillaðar pylsur kl. 17.00 til 18.00.
Föstudaginn 11. sept. kl. 14.00 til 18.00, grillaðar pylsur kl. 17.00 til 18.00.
Laugardaginn 12. sept. kl. 13.00 til 18.00.
Sunnudaginn 13. sept. kl. 14.00 til 19.00. Lokadagur sumarsins. Boðið verður uppá kjötsúpu kl. 16.00 til 18.00. Sjá hér að neðan. Munið að skrá ykkur tímanlega.
KJÖTSÚPA
Sunnudaginn 13. sept. nk. kl. 16.00 til 18.00 verður boðið uppá bragðgóða Kjötsúpu og brauð. Skammturinn kostar 500 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn 10 ára og yngri. Ath. að það þarf að skrá sig og við tökum ekki kort. Allur ágóði rennur beint í Krikasjóðinn. Það er Jóna Marvinsdóttir sem er okkur að góðu kunn sem ætlar að elda súpuna.
Til að vita hve mikið hráefni þarf að kaupa, þá vinsamlega skráið þátttökufjölda á skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 551-7868 eða hjá Kristínu í síma 865-6706 eða stinar@isl.is í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 8. sept. 2009. Áríðandi er að allir skrái sig.