Leit

Saga úr gestabókinni

08. júlí 2006 klukkan 01:44
Maríuerla

Í dag, fimmtudaginn 6.júlí 2006 var ég í Krika ásamt Ólöfu dótturdóttur minni. Fáir aðrir mannlegir voru þar, en margir smáfuglar. Gáfum þeim brauð útfyrir pallendann, en nokkrir molar dreifðust hjá Ólöfu á gólfið inni og á teppið á ganginum.

Nú þarna sátum við og spiluðum við borðið, er Ólöf segir: „Uss amma, sjáður“, og vitiði hvað? Máríuerluungi var kominn inn í gang og hélt áfram alveg inn að vaskborði, snéri þar við og kom alveg að hjólastólnum og trítlaði svo út og allan tímann tíndi hann upp brauðið. Leið svo smátími og kom svo aftur og nú inn að grillinu.

Ég hef nú oft verið nálægt villtum smáfuglum, en aldrei hafa þeir verið svo nálægt mér áður. Þetta var yndislegt. Eftir að gestirnir fóru, var mikið úrval af kexmylsnu og brauði úti og nóg að gera. Gott veður i allan dag, sól mest allan daginn, en golan köld.

Kristín R. Magnúsdóttir

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur