Leit

Nú fer ađ fćrast fjör í leikinn

30. júní 2010 klukkan 23:52
Aðsókn hefur verið mjög góð það sem af er sumri enda verðrið verið frábært við Elliðavatn. Það er opið alla daga í sumar frá kl. 13.00 til 18.00. Flesta sunnudaga verður þó opnað fyrr eða kl. 11.00.

Dagskrá er með hefðbundnu sniði og verður auglýst hér þegar sérstakir atburðir verða.

Tveir skemmtilegir og ólíkir atburðir eru þó þegar ákveðnir í júlí. Helgina 10. - 11. júlí er stefnt að því að halda hinn árlega Bátadag sem Kjartan Jakob Hauksson mun sjá um auk Krikavinahópsins.

Laugardaginn 17. júlí verður Prjónadagur í Krika. Ása Hildur sem er ein af sjálfboðaliðunum mun halda utan um hann. En þess má geta að hún hefur sett upp PrjónaGraff á hliðstaurinn við Krika.

Þessir tveir atburðir verða auglýstir nánar næstu daga.

Annars eru áfram grillaðar pylsur kl. 17.00 á föstudögum og bakaðar vöfflur kl. 15.00 á sunnudögum. 

Panta verður daga fyrir uppákomur hjá Kristínu R. Magnúsdóttur í s. 865-6706 eða
stinar@isl.is

Sjáumst hress Cool

Krikavinir

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur