Leit

Hinn árlegi bátadagur verđur haldinn í Krika viđ Elliđavatn um nćstu helgi!

05. júlí 2010 klukkan 18:36

Þannig að nú er um að gera að bretta upp ermar og skálmar og láta vaða í einn léttan róður um Elliðavatn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland árið 2005, verður okkur til halds og trausts sem fyrr.


Undanfarin ár hefur fullt af fólki nýtt sér leiðsögn þessa ,,róandi“ manns og hefur hann gert allt til þess að hver og einn geti farið í bátsferð um vatnið. Allt hefur hingað til tekist vel og þessi atburður verið einn sá vinsælasti í Krika á hverju ári.


ATHUGIÐ: Þessu verður þannig háttað í þetta skiptið að bátadagurinn verður haldinn annaðhvort á laugardeginum eða sunnudeginum, eftir því sem betur viðrar. Endanleg dagsetning verður auglýst á fimmtudeginum 8. júlí hér á síðunni. (Eins og staðan er núna miðvikudag klukkan 14:58, þá eru meiri líkur á að bátadagurinn verði á laugardaginn.)


Einnig verður hægt að hringja á fimmtudeginum og föstudeginum í síma 899-2764 til að fá nánari upplýsingar.

Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að fá heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í nýja húsinu okkar. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.


Kriki, útivistarsvæði Sjálfsbjargar félags fatlaðra hefur verið opinn á hverju sumri þar sem allir geta komið og notið þeirrar náttúru sem þetta einstæða vatn hefur upp á að bjóða.


Allir eru velkomnir á þennan bátadag. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði. Ath. tökum ekki kort. 

Opið verður frá 11.00 til19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00.

Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Grillaðar verða pylsur og seldar ásamt öðrum veitingum á mjög
vægu verði

Sjáumst hress

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur