Leit

♪♪♪ Ţađ er BÁTADAGUR í dag ♪♪♪

11. júlí 2010 klukkan 08:45
Nú er það ljóst að BÁTADAGURINN er í dag. Sólin er komin upp og ætlar að vera hjá okkur í allan dag skv. spám Veðurstofu íslands. Húsið opnar kl. 11.00. En bátarnir verða í gangi milli kl. 13.00 ot 17.00. Í sumarhúsinu verða bakaðar vöfflur og seldir drykkir og ís. Seinni partinn grillum við svo pylsur.

Allir eru velkomnir það kostar ekkert að fara í bátana og gott aðgengi er á bryggjurnar fyrir hjólastóla og þeir sem þurfa hjálp í bátana fá hana.

Það er Kjartan Jakob Hauksson kafari með meiru og vösk sveit með honum sem sér um bátana og öryggismálin. Krikavinir sjá svo um að kaffiveitingar og annað sem til þarf.

Ath. að við tökum ekki posa.

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur