Leit

Prjónadagur á laugardaginn

15. júlí 2010 klukkan 08:28

Laugardaginn 17. júli kl. 13—18 ætlar Ása Hildur að hafa prjónadag í Krika. Þá eru allir hvattir til að koma með prjóna eða annað handverk. Hægt verður að prjóna bæði úti á palli, úti í náttúrinni, við vatnið eða bara inni allt eftir veðri.

Ása Hildur ætlar að koma með garn og prjóna ef einhver vill kennslu eða hjálp við prjónaverkefni er það velkomið. Einnig kemur hún með eitthvað af prjónablöðum, ma. gömul blöð sem amma hennar átti. Þá verður hún með prjónamerki til sölu. Við ætlum að hafa þetta allt mjög óformlegt og umfram allt skemmtilegt

Allir velkomnir
og endilega takið með ykkur gesti. Hægt verður að kaupa drykki og íspinna á staðnum. Ath. Tökum ekki kort.

Úti er gott útisvæði fyrir krakkana kjörið að láta þau taka með sér háf til að fara á fiðrildaveiðar eða sílaveiðar á meðan. Nánari uppl. og leiðarlýsing er á www.kriki.bloggar.is

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur