Leit

Kriki rokkar

29. júlí 2010 klukkan 12:34
Í gær funduðu Krikavinir sem er hópur sjálfboðaliða sem sér um að manna Krikavaktirnar. Vel gekk að skipta milli sín dögunum í ágúst. Opnunartímarnir eru komnir hér til vinstri á síðunni. Rúmlega 1200 manns hafa þegar heimsótt Krika í sumar og veðrið leikið við okkur.
 
Tvær uppákomur eru þegar ákveðnar í ágúst en hver veit nema þær verði fleiri.

Miðvikudaginn 18. ágúst kl 17.00 til 19.00 ætlar Jóna Marvins að elda hina víðfrægu kjötsúpu sína og selja til styrktar uppbyggingunni í Krika. Það er nánari auglýsing hér til vinstri en það þarf að bóka sig fyrirfram í súpuna.

Ása Hildur ætlar svo að endurtaka Prjónadaginn sem tókst svo vel í júlí. Hann verður laugardaginn 21. ágúst kl. 13.00 til 18.00.

Allir eru alltaf velkomnir í Krika sem við teljum Paradís á jörð :-)

Sjá nánar um opnunartíma hér til vinstri.

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur