Leit

Prjónadagur á laugardaginn

22. júní 2011 klukkan 21:22

Laugardaginn 25. júní kl. 13-18 ætlar Ása Hildur að endurtaka leikinn frá fyrra og hafa prjónadag í Krika við Elliðavatn. Þá eru allir hvattir til að koma með prjóna eða annað handverk. Hægt verður að prjóna bæði úti á palli, úti í náttúrinni, við vatnið eða bara inni allt eftir veðri.

Ása Hildur ætlar að koma með garn og prjóna ef einhver vill kennslu eða hjálp við prjónaverkefni er það velkomið. Einnig kemur hún með eitthvað af prjónablöðum og bókum.  Þá verður hún með prjónamerki til sölu. Við ætlum að hafa þetta allt mjög óformlegt og umfram allt skemmtilegt

Allir velkomnir og endilega takið með ykkur gesti. Hægt verður að kaupa drykki og íspinna á staðnum. Ath. tökum ekki kort.

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur