Bátadagur seinnipart sumars
11. júlí 2011 klukkan 00:18
Mikið fjör er flesta daga í Krika þetta sumarið og sjálfboðaliðarnir uppátektarsamir. Stærsti atburður sumarsins og sá sem fastagestir hlakka alltaf mikið til er Bátadagurinn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland til styrktar Sjálfsbjörg hefur komið einu sinni á sumri með fullt af bátum og leyft öllum sem vilja að sigla um Elliðavatn undir vökrum augu hans og hjálparmanna hans. Fyrirhugað er að halda Bátadaginn í ár seinnipart sumars. Dagsetningin er enn á reiki en fer mikið eftir veðurspánni, en hún verður auglýst hér svo fylgist vel með síðunni.
Annars er föst opnun alla daga frá kl. 13.00 til kl. 18.00 nema föstudaga þá er opið til kl. 19.00. Á sunnudögur er alltaf vöfflukaffi kl. 3 og á föstudögum er pylsupartý kl. 17.00 til 18.30. Á mánudögum er Ása Hildur með prjónakennslu en að öðru leiti er dagskráin opin fyrir allt mögulegt sem sjálfboðaliðarnir taka sér fyrir hendur.
Við erum að sjálfsögðu líka á facebook svo endilega gerist vinir okkar þar til að fylgjast enn betur með.
Krikaknús á ykkur

Árni Sal.
Þetta er ekki rétt. Kjartan hafði samband við mig eftir að ég talaði við þig og hann verður upptekinn á þessum tíma. Þessvegna hef ég ekki sent út auglýsingu til þín eða ykkar. Nánar auglýst síðar.
#1
11. júlí 2011 klukkan 00:27