Hinn árlegi bátadagur verđur haldinn í Krika viđ Elliđavatn 13. eđa 14. ágúst!
Þannig að nú er um að gera að bretta upp ermar og skálmar og láta vaða í einn léttan róður um Elliðavatn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland árið 2005, verður okkur til halds og trausts sem fyrr. Undanfarin ár hefur fullt af fólki nýtt sér leiðsögn þessa ,,róandi" manns og hefur hann gert allt til þess að hver og einn geti farið í bátsferð um vatnið. Fatlaðir fá aðstoð við að fara í bátana og á vatnið og eru þeir sérstaklega hvattir til að fjölmenna og njóta traustra handtaka Kjartans og hans manna. Göngustígar eru aðgengilegir niður að vatni og í húsinu er klósett aðgengilegt fyrir hreyfihamlaða. Allir eru velkomnir ungir sem gamlir. Allt hefur hingað til tekist vel og þessi atburður verið einn sá vinsælasti í Krika á hverju ári.
ATHUGIÐ: Þessu verður þannig háttað í þetta skiptið að Bátadagurinn verður haldinn annaðhvort á laugardeginum eða sunnudeginum, eftir því sem betur viðrar. Endanleg dagsetning verður auglýst á fimmtudeginum 11. ágúst hér og á facebook. Hér til vinstri er einnig að finna leiðarlýsingu. Þá verður hægt að hringja á fimmtudeginum og föstudeginum í síma 899-2764 til að fá nánari upplýsingar.
Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að kaupa heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í húsinu okkar. Seinnipartinn verða síðan grillaðar pylsur. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.
Kriki, útivistarsvæði Sjálfsbjargar félags fatlaðra hefur verið opinn á hverju sumri þar sem allir geta komið og notið þeirrar náttúru sem þetta einstæða vatn hefur upp á að bjóða. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði og allur ágóði fer til uppbyggingar í Krika Ath. við tökum ekki kort.
Opið verður frá 12.00 til 18.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira.
Sjáumst hress Krikavinir