Haladagur og Bátadagur
13. júlí 2006 klukkan 05:37
Jæja nú er allt að gerast í einu í Krikanum.
Fyrirhuguðum bátadegi er frestað um sinn en verður 20. ágúst sjá nánar hér neðar
Laugardaginn 22. júlí nk. verður Haladagur í Krika. Hugmyndin er að við komum saman og leikum okkur aðeins. Við erum búin að fá 3 stuttverk eftir Ármann Guðmundsson til að leiklesa. Gullið tækifæri til að kynnast aðeins verkum hans.
Það verður opið frá 11.00 til 21.00 í Krikanum, milli 5 og 7 er áætlað að grilla. Hver og einn kemur sjálfur með á matinn á grillið og drykkjarföng svo hjálpumst við að. Í Krika er selt gos, kaffi, sælgæti ofl. við höfum þetta allt voða frjálslegt og skemmtileg.
Ef einhverjir luma á skemmtilegum leikjum eða uppákomum er það vel þegið. Kjörið tækifæri til að spreyta sig á hinum ýmsu hliðum leiklistarinnar. Hljóðfæri eru að sjálfsögðu sérlega velkomin.
Allir Halar sem aðrir eru velkomnir.

Náttúruparadís Sjálfsbjargarfélaga, Kriki, hefur upp á margt að bjóða.
Eitt af því er Elliðavatnið sjálft. Róður er frábær íþrótt. Þeir sem stunda þessa heilnæmu hreyfingu, bæta úthald, auka jafnvægi ásamt því að styrkja hendur og líkama. Þar sem lífríki umhverfisins er mjög svo fjölbreytt og stórkostlegt verður bátsferðin ein allsherjar náttúruskoðun.
Af því tilefni ætlar Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu að halda svokallaðan bátadag. Hann verður sunnudaginn 20. ágúst uppí Krika við Elliðavatn, milli klukkan 13:00 og 17:00.
Ýmsar gerðir báta verða í boði fyrir fólk að prófa. Hinn eini sanni Kjartan Jakob Hauksson, sem réri í kringum landið í fyrra og safnaði hátt í tíu milljón króna í hjálparliðasjóðinn okkar, mun hafa yfirumsjón með deginum. Hann mun kenna fólki réttu róðrartökin ef þurfa þykir. Einnig verður hann með bátinn ,,Frelsi” sem hann réri í kringum landið á og aldrei að vita nema að Kjartan bjóði fólki með sér í róðrartúr!

Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Grillaðar verða pylsur og seldar ásamt öðrum veitingum á mjög vægu verði.