Haladagur laugardaginn 12. ágúst
08. ágúst 2006 klukkan 04:29

Hugmyndin er að koma saman og leika sér aðeins. Við erum með nokkur stuttverk sem hægt er að leiklesa , eftir ýmsa höfunda og svo eru sönghefti á staðnum.
Það verður opið frá 14.00 til 18.00 í Krikanum jafnvel lengur ef stemming og veður leifa. Um fimmleitið er áætlað að grilla. Hver og einn kemur sjálfur með matinn á grillið og drykkjarföng, svo hjálpumst við að.
Ef einhverjir luma á skemmtilegum leikjum eða uppákomum er það vel þegið. Kjörið tækifæri til að spreyta sig á hinum ýmsu hliðum leiklistarinnar. Hljóðfæri eru að sjálfsögðu sérlega velkomin.