Leit

Allir í bátana!

15. ágúst 2006 klukkan 05:21
Kjartan Jakob Hauksson

Náttúruparadís Sjálfsbjargarfélaga, Kriki, hefur upp á margt að bjóða.
     Eitt af því er Elliðavatnið sjálft. Róður er frábær íþrótt. Þeir sem stunda þessa heilnæmu hreyfingu, bæta úthald, auka jafnvægi ásamt því að styrkja hendur og líkama. Þar sem lífríki umhverfisins er mjög svo fjölbreytt og stórkostlegt verður bátsferðin ein allsherjar náttúruskoðun.
     Af því tilefni ætlar Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu að halda svokallaðan bátadag.  Hann verður sunnudaginn 20. ágúst uppí Krika við Elliðavatn, milli klukkan 13:00 og 17:00.
     Ýmsar gerðir báta, svo sem kajakar, árabátar, kanó ofl.  verða í boði fyrir fólk að prófa. Hinn eini sanni Kjartan Jakob Hauksson, sem réri í kringum landið í fyrra og safnaði rúmlega tíu milljónum króna í hjálparliðasjóðinn okkar, mun hafa yfirumsjón  með deginum. Hann ásamt öðrum mun kenna fólki réttu róðrartökin og aðstoða fólk í bátana ef þarf. Einnig verður hann með bátinn ,,Frelsi” sem hann réri í kringum landið á og aldrei að vita nema að Kjartan bjóði fólki með sér í róðrartúr!
     Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Seldar verða grillaðar pylsur eða bakaðar vöfflur allt eftir veðri. Þar sem allra veðra er von á Íslandi biðjum við fólk að vera vel klætt. Kaffi og kakó á könnunni allan daginn!
    

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur