Undirbúningur undir bátadaginn á fullu
20. ágúst 2006 klukkan 01:46
Í dag var unnið baki brotnu í Krika við undirbúning Bátadagsins sem er að renna upp. Kjartan kom með enn eina hugmyndina. Nú er trébryggjan komin með liðamót og orðin að þessarri líka fínu skábraut niður að flotbryggjunum.

Hér er Kristín ásamt Kjartani og Sögu að taka út liðamótin á bryggjunni.

Kjartan sló svo fæturnar undan bryggjunni hvern á eftir öðrum

Og varð fyrstur til að ganga skábrautina

Einar og Árni fóru í mikið framkvæmdastuð og fengu aðstoð við að þjappa mölina að nýja húsin og voru langt komnir með að gera bráðabirgðaaðgengi að honum þegar síðast fréttist.
Þá er bara að fjölmenna í Krikann á bátadaginn. Nánari upplýsingar hér neðar.