Dularfulla varnshvarfiđ frh.
31. maí 2006 klukkan 17:54
Ekkert bólar enn á vatninu og hið undarlega gerðist að vatnsveitukallarnir eru líka horfnir. Uppi eru sögusagnir um hulduher sem hafi numið brott kalda vatnið og starfsmenn Kópavogsbæjar til að mótmæla byggingaframkvæmdum í nágrenni Elliðavatns. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Í gær kom fjölmenni í Krika en enginn hafði áhuga á að leita að vatninu heldur á því að komast á vatnið. Þar var á ferð ma. fríður flokkur Sjálfsbjargarfélaga og Kjartan J. Hauksson hetjan okkar, sem var að skipuleggja bátadaginn sem fyrirhugaður er 15. júlí nk. Verið er að leita uppi báta og mannskap í verkið og gengur vel. Kjartan er að viða að sér efni til að gera við trébryggjuna og ýmis áform voru reyfuð. En nánar um það seinna.

Dularfulla vatnshvarfiđ
30. maí 2006 klukkan 03:12
Í Krika er nú hafið mikil leit að vatninu. Kalda vatnið hvarf á dularfullan hátt fyrir helgi og hefur ekkert til þess spurst síðan.
Í dag fór föngulegur hópur frá Vatnsveitu Kópavogsbæjar í ratleik en fann hvergi vatnið. Málið er allt hið dularfyllsta. Ýmis tæki og tól voru notuð við leitina án árangurs. Heil rúta fullbúin dularfullum tækjum og tólum kom á svæðið, grafin var djúp hola en en allt var í sóma þar í neðra. Allt er í sóma inn í húsi líka. Pallurinn var rifinn upp á parti en þar reyndist líka allt vera í besta standi.
Sérsveitin spígsporaði um allt land Krika og nágrennis í leit að orsökum dularfulla vatnshvarfsins. Að lokum yfirgáfu þeir svæðið og sögðust koma aftur á morgun eftir góðan draumasvefn þar sem lausnin kæmi fram. Vonandi gengur það eftir.
Af öðrum atburðum dagsins í Krika þá voru fuglarnir duglegir að syngja og höfðu betur en skarkalinn frá byggingasvæðinu sem er farinn að nálgast ískyggilega.
Slatti af börnum lék sér við vatnið og nokkrir renndu fyrir fisk. Einn hestur fældist svo við tól sérsveitarinnar að hann henti knapa sínum af baki en sá slapp án meiðsla. Guði sé lof.
Áframhald ratleiksins hefst kl. 13.00 á morgun þriðjudag svo allir skarpir með nef fyrir vatni eru hvattir sérstaklega til að koma í Krika og taka þátt í leitinni.

Nú er regluleg opnun hafin
29. maí 2006 klukkan 15:47
Á laugardaginn var vegleg opnunarhátíð í Krika

Fjöldi manns mætti og átti góða stund með Brúðubílnum, hestum og yndislegri náttúru. Myndir eru komnir á myndasíðuna
Frá og með deginum í dag verður opið alla virka daga frá 13 - 19 og um helgar frá 11 - 21 í paradísinni okkar Sjálfsbjargarfélaga.
Allir velkomnir

Kriki sumar 2006
18. maí 2006 klukkan 04:56
Opnun í Krika verður laugardaginn 27. maí. Þá mun Brúðubíllinn koma og sýna fyrir börnin eins og fyrri ár

Í sumar verður opið alla virka daga frá 13 - 19 og um helgar 11 - 21. frá og með 29. maí.
Á föstudögum kl. 17.00 verður tendrað upp í grillinu og grillaðar pylsur
Á sunnudögum kl. 15.00 verða bakaðar vöfflur
Vaskt lið sjálfboðaliða hefur tekið að sér að hafa opið í paradísinni okkar Sjálfsbjargarfélaga.
Hægt verður að senda okkur tölvupóst á netfangið kriki@best.is og láta setja sig á póstlista og fá senda dagskrá jafnóðum og hún verður til
Ýmsar uppákomur verða í sumar svo sem bátadagur og Haladagar sem og ýmislegt sem enn er í vinnslu.
Allar upplýsingar koma hér inn jafnóðum