Leit

Breyttir opnunartímar

28. júní 2006 klukkan 15:37
Frá og með 1. júlí verður opnunartímanum breytt lítilega í ljósi reynslunnar.

Mánudaga til fimmtudaga verður opið frá 13.00 til 19.00, á föstudögum verður opið frá kl. 13.00 til 20.00, laugardaga frá 11.00 til 21.00 og sunnudaga frá 11.00 til 19.00

Bátadagurinn verður þann 15. júlí nk. og Haladagur 22. júlí. Nánari upplýsingar koma inn fljótlega.

Fuglar og Jurtir

21. júní 2006 klukkan 03:59
Kriki er frábær staður til náttúruskoðunnar. Þar er Stína búin að finna ansi margar jurtir, hún skráir þær niður og fylgist vel með þessu. Þær jurtir sem hún hefur nú skráð eru: Hvönn, ljónslappi, maríustakkur, njóli, burnirót, fjalladalsfífill, beitilyng, hófsóley, hreindýramosi, túnfífill, krækiberjalyng, blóðberg, túnsúra, vallhæra, sóley og vegarfi. 

Hvönnin um verslunarmannahelgina 2004

Hvönnin um verslunarmannahelgina 2004

Ég skora svo á fólk að leita hvort fleiri jurtir finnist og láta okkur vita. Vonandi getum við sett upp undirsíðu með myndum af plöntunum og fróðleik um þær.

Þess má geta að við seljum jurtakrem í Krika sem Kristín býr til sjálf og virka vel það get ég vitnað um.

Árni fór svo í fuglaskoðun 4. júní  og sá þessa fugla : Lóu, kríu, máv, svartbak, tjald, grágæs, maríuerlu, önd, þröst, starra og álft.

Gaman væri ef hægt væri að bæta við þessa skrá ef fólk með þekkingu finnur fleiri jurtir eða fugla.

Svo má gera skordýraskrá og furðufuglaskrá og ............

Næg verkefni eru í Krika og spáin framundan góð svo drífa sig í Paradísina.  Svalur

Föstudagsfjör og Haladagur

16. júní 2006 klukkan 01:07

Bara að minna á föstudagsfjörið. Opið frá 13.00 - 19.00 Grillaðar pylsur kl. 17.00 flott tilboð í gangi alla föstudaga.

Haladagur 2005

Á sunnudaginn verður svo Haladagur í Krika þar sem Halaleikhópurinn mun leika lausum hala. Og aldrei að vita hvað verður úr þeim degi. Þá verður grillað milli 17.00 og 18.00 nánari upplýsingar á www.halaleikhopurinn.is

Allir eru velkomnir um helgina verður opið frá 11.00 - 21.00


Myndin hér að ofan er frá Haladegi sl. sumar

Enginn er verri ţó hann vökni

08. júní 2006 klukkan 04:00
Lóan

Eitthvað hefur himnafaðirinn tekið þetta alvarlega með dularfulla vatnshvarfið og skorist í leikinn. Í dag rigndi hressilega í Krikanum en var hlýtt og milt. Lóan sem stendur þarna á miðjum stígnum var hress í dag enda nóg af ormum út um allt. Vatnsveitukarlarnir komu í gær og grófu holur um allt hverfið en fundu ekki orsök vatnshvarfsins samt sem áður. Í dag sást ekki til þeirra.

Birtan og litirnir í rigningunni voru ákaflega fallegir í paradísinni okkar í dag og verðugt verkefni fyrir vatnslitamálara eða myndasmiði.


Einbeyting

Hér er svo mynd frá því á sunnudaginn siðasta þegar Árni og Arndís einbeittu sér að vöfflubakstir og rjómaþeyting eins og sjá má.


Helgaropnun

03. júní 2006 klukkan 04:29
Bara að minna á að um helgar verður opið í Krika frá kl. 11.00 til kl. 21.00

Fyrsta föstudagsgrillið tókst mjög vel svo vonandi verða margir sem koma og njóta lífsins í Krika um helgina.

Bráðabirgða vatnstenging er komin á og vonandi lýkur vatnsmálinu fljótlega eftir helgi.

Á sunnudaginn kl. 15.00 verða bakaðar vöfflur og þeyttur rjómi
.

Sunnudagstilboð :

Vaffla með rjóma og drykkur á 300 kr.
aukavaffla á 100 kr

Fjörugur föstudagur

02. júní 2006 klukkan 05:59
Á föstudögum er fjör í Krika. Kl. 17.00 verður grillið dregið fram og grillaðar pylsur. Nú þarf enginn að drífa sig heim og elda heldur bara að skella sér í Krika og taka þátt í fjörinu í æðislegu umhverfi og fínum félagsskap. Allir velkomnir.

pylsa

Föstudagstilboð 2 grillaðar og gómsætar pylsur með öllu og gosi á 500 kr. Hlæjandi

Ein pylsa kostar annars 200 kr. og gos 150 kr.

Enn eru engar fréttir að hafa af dularfulla vatnshvarfinu en hver veit þegar vaskt lið er búið að gæða sér á pylsum nema vatnið finnist?

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur