Leit

Fróđleikur um jurtirnar í Krika.

28. júlí 2006 klukkan 16:36
lyfjagras

Kristín R. Magnúsdóttir sendi okkur þennan fróðleiksmola um jurtirnar í Krika:
 Eftirfarandi jurtir á bloggsíðu Krika eru lækningajurtir, sjá t.d.  bókinni:  Íslenskar lækningajurtir, eftir Arnbjörgu L. Jóhannsdóttur o.fl. bókum.

Ætihvönn, lokasjóður, tágamura,  hrafnaklukka, lyfjagras, mjaðurt, gulmaðra,
gleym mér ei, vallelfting, túnsúra, blóðberg, túnfífill, beitilyng, fjalldalafífill, burnirót, njóli, maríustakkur, ljónslappi og hreindýramosi.

Hef ekkert fundið um hreindýramosa í bókum, en er sagt af fróðum að hann sé jafningi fjallagrasa og jafnvel enn betri. Hann er til rannsóknar í Háskóla Íslands, eins og fleiri ísl.jurtir til lyfjagerðar.
 

Alhliða heilsute, 7 jurtir:
 

Varúð
! Ef of mikið er af sumum jurtunum, gæti það valdið skaða. Hlutföll verða að vera rétt.

Fallagrös, hreindýramosi, ljónslappi, maríustakkur, blóðberg, túnsúra og rjúpnalauf.

Fólk skyldi alltaf leita til læknis, ekki treysta eingöngu á jurtir, en hafa þær með.
Þær eru stundum lengi að virka, en langvirkni er góð og gott að nota þær með lyfjum, ýmist til töku innvortis eða sem krem og olíur. Ég minnkaði gigtarlyfin mín um leið og jurtirnar fóru að virka og síðustu tæp 7 ár, hef ég aðeins notað krem úr ísl. villtum jurtum (tínd utan alfaraleiða).

Hér á landi eru margir að gera frábær jurtakrem og –olíur og hægt að kaupa þau í heilsubúðum og lyfjabúðum um allt land. Engar aukaverkanir, en auðvitað virka ekki allar jurtir eins á alla. Ef þú gefur jurtalyfjum sömu tækifæri þ.e. tröllatrú á virkni og þú hefur á pillum frá læknum, þá mun þér vel farnast.  Til að flýta fyrir virkni jurta, er betra að bera þau á sig (eða drekka te)  x 2 á dag.

 

Upphafiđ

27. júlí 2006 klukkan 05:53
Vil vekja athygli á nýrri undirsíðu sem ber heitið upphafið og segir aðeins frá forsögu og tilurð Krika. Tekið úr gömlu bréfi.

Linkurinn er hér til vinstir og heitir
Upphafið

Gashitarinn vígđur

22. júlí 2006 klukkan 04:22
Sumarið er komið af fullum þunga í Krikann. Í dag var fjör í kvöldmatnum þ.e. pylsutilboðinu. Stína grillaði eins og hún hefði aldrei gert annað.

21. júlí 2006

Aðeins tók að kula og þá var nýji gashitarinn vígður og vakti mikla gleði í hópnum. Það voru þau heiðurshjón Guðbjartur Haraldsson og Helga Jónsdóttir sem færðu okkur þennan forlála hitara.


Helga og Guðbjartur ágúst 2003

Við færum þeim okkar bestu kveðjur og þakkir fyrir hlýhuginn.

Strćtó gengur langleiđina í Krika

21. júlí 2006 klukkan 16:34
Fyrir þá sem ekki hafa einkabíl til afnota má geta þess að leið 28 stoppar 700 metra frá Krika :-) Einnig fer ferðaþjónusta fatlaðra alla leið að Krika. Allir í Strætó í blíðuna í Krika þar sem sólin skín skærast. Sjá nánar HÉR

Vísa úr gestabókinni

19. júlí 2006 klukkan 04:03
Bara gengur býsna vél
byrja, smíða og laga.
Kristín hefur kokkað vél
í Krika sína daga.


Drengur

Haladagur og Bátadagur

13. júlí 2006 klukkan 05:37
Jæja nú er allt að gerast í einu í Krikanum.

Fyrirhuguðum bátadegi er frestað um sinn en verður 20. ágúst sjá nánar hér neðar

Laugardaginn 22. júlí nk. verður Haladagur í Krika. Hugmyndin er að við komum saman og leikum okkur aðeins. Við erum búin að fá 3 stuttverk eftir Ármann Guðmundsson til að leiklesa. Gullið tækifæri til að kynnast aðeins verkum hans.

Það verður opið frá 11.00 til 21.00 í Krikanum, milli 5 og 7 er áætlað að grilla. Hver og einn kemur sjálfur með á matinn á grillið og drykkjarföng svo hjálpumst við að. Í Krika er selt gos, kaffi, sælgæti ofl. við höfum þetta allt voða frjálslegt og skemmtileg.

Ef einhverjir luma á skemmtilegum leikjum eða uppákomum er það vel þegið. Kjörið tækifæri til að spreyta sig á hinum ýmsu hliðum leiklistarinnar. Hljóðfæri eru að sjálfsögðu sérlega velkomin.

Allir Halar sem aðrir eru velkomnir.

Kjartan Jakob Hauksson

Náttúruparadís Sjálfsbjargarfélaga, Kriki, hefur upp á margt að bjóða.

Eitt af því er Elliðavatnið sjálft. Róður er frábær íþrótt. Þeir sem stunda þessa heilnæmu hreyfingu, bæta úthald, auka jafnvægi ásamt því að styrkja hendur og líkama. Þar sem lífríki umhverfisins er mjög svo fjölbreytt og stórkostlegt verður bátsferðin ein allsherjar náttúruskoðun.

Af því tilefni ætlar Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu að halda svokallaðan bátadag.  Hann verður sunnudaginn 20. ágúst uppí Krika við Elliðavatn, milli klukkan 13:00 og 17:00.

Ýmsar gerðir báta verða í boði fyrir fólk að prófa. Hinn eini sanni Kjartan Jakob Hauksson, sem réri í kringum landið í fyrra og safnaði hátt í tíu milljón króna í hjálparliðasjóðinn okkar, mun hafa yfirumsjón  með deginum. Hann mun kenna fólki réttu róðrartökin ef þurfa þykir. Einnig verður hann með bátinn ,,Frelsi” sem hann réri í kringum landið á og aldrei að vita nema að Kjartan bjóði fólki með sér í róðrartúr!


Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Grillaðar verða pylsur og seldar ásamt öðrum veitingum á mjög vægu verði.

Nýtt hús í Krika

11. júlí 2006 klukkan 05:26
Í dag var stór dagur í sögu Krika. Langþráður draumur rættist og nýtt hús var flutt í Krikann. Það var Kópavogsbær sem var svo rausnarlegur að styrkja okkur um eitt stykki hús.

Trén reyna að halda aftur af húsinu

Hér kemur húsið lullandi gegnum skóginn enda hafði það frétt af stuðinu í Krika :-)


Húsið flýgur

Einhverjum datt í hug að sniðugt væri að hafa Krika á tveimur hæðum !!!

fjölbýlishús?

En það féll ekki í góðan jarðveg enda engin lyfta svo í grunninn fór það rétt hjá fuglahúsinu.

Vinnuflokkurinn

Þessir vösku sveinar unnu vel vinnuna sína í dag og eiga miklar þakkir skilið

Ása Hildur var á svæðinu með myndavélina og tók bara 90 myndir þær má sjá
HÉR

Enn einn víđgđur grillmeistari

08. júlí 2006 klukkan 18:44
Mikil fjör hefur verið kringum föstudagstilboðin og fleiri og fleiri læra á grillið. Hér er mynd af formanninum að grilla í blíðunni á föstudaginn. Og Einar fylgist spekingslegur með kannski grillar hann næst hver veit?

Grétar Pétur grillar

 

Spáin er góð fram yfir helgi svo ég hvet fólk til að fjölmenna í paradísina okkar .

Á sunnudaginn er svo vöfflutilboð kl. 3 sjá verðlista hér til vinstri.

Næsta helgi fer svo í Bátadaginn þá fyrst færist fjör í leikinn, það verður nánar auglýst síðar.

Saga úr gestabókinni

08. júlí 2006 klukkan 01:44
Maríuerla

Í dag, fimmtudaginn 6.júlí 2006 var ég í Krika ásamt Ólöfu dótturdóttur minni. Fáir aðrir mannlegir voru þar, en margir smáfuglar. Gáfum þeim brauð útfyrir pallendann, en nokkrir molar dreifðust hjá Ólöfu á gólfið inni og á teppið á ganginum.

Nú þarna sátum við og spiluðum við borðið, er Ólöf segir: „Uss amma, sjáður“, og vitiði hvað? Máríuerluungi var kominn inn í gang og hélt áfram alveg inn að vaskborði, snéri þar við og kom alveg að hjólastólnum og trítlaði svo út og allan tímann tíndi hann upp brauðið. Leið svo smátími og kom svo aftur og nú inn að grillinu.

Ég hef nú oft verið nálægt villtum smáfuglum, en aldrei hafa þeir verið svo nálægt mér áður. Þetta var yndislegt. Eftir að gestirnir fóru, var mikið úrval af kexmylsnu og brauði úti og nóg að gera. Gott veður i allan dag, sól mest allan daginn, en golan köld.

Kristín R. Magnúsdóttir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur