Leit

Fleiri myndir

29. ágúst 2006 klukkan 18:34
Nú eru komnar fleiri myndir af bátadeginum HÉR

Hekla og Sigrún Ósk

















Lokadagur sumarsins er svo á fimmtudaginn 31. ágúst. Enn möguleiki fyrir þá sem ekki hafa enn komið í Krikann í sumar, og fyrir hina að koma og sjá hvernig haustlitirnir eru að pota sér inn í gróðurinn í Krika.

Síðasti sjens

28. ágúst 2006 klukkan 03:17
Nú er komið að lokadögum opnunar í Krika þetta sumarið. Í dag var vatnið spegilslétt svo það speglaðist allt í því, og myndavélin gleymdist heima. Þetta var undurfögur sjón.

En sem sagt það er enn opið frá 14.00 til 18.00 út ágúst.

Bátadagurinn var vel heppnaður :-)

22. ágúst 2006 klukkan 02:06
Bátadagurinn var alger demantur. Allt gekk upp veðrið var yndislegt, fjöldi fólks mætti sennilega um 80 manns og ríflega helmingur þeirra skellti sér á vatnið sumir oftar en einu sinni. Vöfflur og pylsur gengu út eins og heitar lummur.

Ósk okkar sem að þessu stóðum er sú að þetta verði að árlegum viðburði í Krika. Viljum við færa Kjartani Jakobi Haukssyni sérstakar þakkir fyrir þetta æðislega framtak. Einnig viljum við þakka öllum sem aðstoðu okkur á einn eða annan hátt við undirbúning og á deginum sjálfum.

Svona velheppnaður dagur verður ekki til nema fyrir tilstilli fjölmargra aðila sem allir unnu gott starf í sjálfboðavinnu. Einnig þakkir til allra gestanna sem komu og nutu dagsins með okkur.


Kerfið var eitthvað að stríða okkur þegar átti að setja myndir inn en þær koma bara síðar á meðan þá er slóð á myndaalbúm með myndum HÉR

Undirbúningur undir bátadaginn á fullu

20. ágúst 2006 klukkan 01:46
Í dag var unnið baki brotnu í Krika við undirbúning Bátadagsins sem er að renna upp. Kjartan kom með enn eina hugmyndina. Nú er trébryggjan komin með liðamót og orðin að þessarri líka fínu skábraut niður að flotbryggjunum. 

Hugað að hnjálið á bryggjunni

Hér er Kristín ásamt Kjartani og Sögu að taka út liðamótin á bryggjunni.

Síðasti fóturinn sleginn undan

Kjartan sló svo fæturnar undan bryggjunni hvern á eftir öðrum

Skábrautin út í Elliðavatn

Og varð fyrstur til að ganga skábrautina

Árni og Einar bregða á leik

Einar og Árni fóru í mikið framkvæmdastuð og fengu aðstoð við að þjappa mölina að nýja húsin og voru langt komnir með að gera bráðabirgðaaðgengi að honum þegar síðast fréttist.

Þá er bara að fjölmenna í Krikann á bátadaginn. Nánari upplýsingar hér neðar.

Allir í bátana!

15. ágúst 2006 klukkan 05:21
Kjartan Jakob Hauksson

Náttúruparadís Sjálfsbjargarfélaga, Kriki, hefur upp á margt að bjóða.
     Eitt af því er Elliðavatnið sjálft. Róður er frábær íþrótt. Þeir sem stunda þessa heilnæmu hreyfingu, bæta úthald, auka jafnvægi ásamt því að styrkja hendur og líkama. Þar sem lífríki umhverfisins er mjög svo fjölbreytt og stórkostlegt verður bátsferðin ein allsherjar náttúruskoðun.
     Af því tilefni ætlar Sjálfsbjörg á Höfuðborgarsvæðinu að halda svokallaðan bátadag.  Hann verður sunnudaginn 20. ágúst uppí Krika við Elliðavatn, milli klukkan 13:00 og 17:00.
     Ýmsar gerðir báta, svo sem kajakar, árabátar, kanó ofl.  verða í boði fyrir fólk að prófa. Hinn eini sanni Kjartan Jakob Hauksson, sem réri í kringum landið í fyrra og safnaði rúmlega tíu milljónum króna í hjálparliðasjóðinn okkar, mun hafa yfirumsjón  með deginum. Hann ásamt öðrum mun kenna fólki réttu róðrartökin og aðstoða fólk í bátana ef þarf. Einnig verður hann með bátinn ,,Frelsi” sem hann réri í kringum landið á og aldrei að vita nema að Kjartan bjóði fólki með sér í róðrartúr!
     Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Seldar verða grillaðar pylsur eða bakaðar vöfflur allt eftir veðri. Þar sem allra veðra er von á Íslandi biðjum við fólk að vera vel klætt. Kaffi og kakó á könnunni allan daginn!
    

Haladagur laugardaginn 12. ágúst

08. ágúst 2006 klukkan 04:29
Haladagur 22. júlí 2006

Hugmyndin er að koma saman og leika sér aðeins. Við erum með nokkur stuttverk sem hægt er að leiklesa , eftir ýmsa höfunda og svo eru sönghefti á staðnum. 

Það verður opið frá 14.00 til 18.00  í Krikanum jafnvel lengur ef stemming og veður leifa. Um fimmleitið er áætlað að grilla. Hver og einn kemur sjálfur með matinn á grillið og drykkjarföng,  svo hjálpumst við að. 

Ef einhverjir luma á skemmtilegum leikjum eða uppákomum er það vel þegið. Kjörið tækifæri til að spreyta sig á hinum ýmsu hliðum leiklistarinnar. Hljóðfæri eru að sjálfsögðu sérlega velkomin.

Ath. breyttur opnunartími í ágúst

03. ágúst 2006 klukkan 04:04
Ströndin

Í ágúst verður opnunartíminn alla daga frá 14.00 til 18.00 nema föstudaga þá verður opið til kl. 19.00.

Minnum á föstudags og sunnudagstilboðin sjá nánar hér til vinstri á tilboðssíðunni.

Um verslunarmannahelgina verður opið frá kl. 14.00 til 18.00 engin skipulögð dagskrá verður þetta árið en við verðum með mikið hullumhæ á bátadeginum þann 20. ágúst nk.

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur