Opnunarhátiđ í Krika 2. júní 2007
Laugardaginn 2.júní 2007 verður opnað í Krika, sumarhúsi Sjálfsbjargar á höfuðb.svæðinu. Foreldrafélag barna með downs heilkenni opna staðinn eins og venjulega og grilla fyrir sitt fólk.
Brúðubíllinn kemur kl. 13 og er öll börn, barnabörn og frændbörn Sjálfsbjargarfélaga velkomin á sýninguna. Til sölu verður kaffi, te eða gerfikakó með eða án meðlætis.
Einnig gos og sælgæti.
Opnum Krika verður svo auglýst á heimasíðu Sjálfsbjargar, eftir helgi.
Sjáumst hress og höfum það skemmtilegt á fallegum og breyttum stað.
kær kveðja, Kristín Kriki s.865-6706
Myndir af framkvćmdunum
Var að setja inn myndir af framkvæmdunum í nýtt albúm undir myndir hér til vinstri. Albúmið heitir Vor 2007. 
Voriđ er komiđ í Krika
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Krika síðustu vikur. Verið er að leggja lokahönd á tenginguna á húsunum og nýja pallinum.
Enn vantar fé uppá til að klára þetta og því hefur hún Kristín R. Magnúsdóttir blásið til fjáröflunar til að fjárfesta í draumaískápnum á uppstigningardag 17. maí kl. 17.00 til 19.30 í félagsheimili Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu Hátúni 12. En þeir eru eigendur Krika.
Jóna Marvins ætlar að elda dýrindis GÚLLASSÚPU eins og henni einni er lagið. Brauð og molasopi fylgir. Þetta selja þær stöllur á 600 kr og 300 kr fyrir börn. Meira að segja ein frí ábót. Húsið opnar kl. 16.45.
Ágóðinn rennur að sjálfsögðu óskiptur til kaupa á ískápnum allir vinna sjálfboðavinnu.
Til að auðvelda hráefnisútreikninga er fólk beðið að skrá sig í gúllassúpuna á skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 551-7868 og annakristin@sjalfsbjorg.is og eða í síma 865-6706 eða stinar@isl.is í síðasta lagi mánudaginn 14. maí 2007
Ég skal svo reyna að komast næstu daga með myndavélina uppí Krika og setja inn nýjar myndir