Leit

Útsýniđ

24. júní 2007 klukkan 22:28
Útsýnið í Krika
Alltaf fjölgar opnunardögunum. Og við höfum notið blíðunnar undanfarið í Krika. Jón Eiríksson tók þessa skemmtilegu útsýnismynd á laugardaginn.

Fylgist með
opnunartímum hér til vinstri. Þar er reglulega uppfært hvenær opið er.

Breytilegur opnunartími

13. júní 2007 klukkan 12:24
Enn er ekki búið að manna sjálfboðaliða allt sumarið svo opnunartíminn er breytilegur. Fylgist því vel með á síðunni Opnunartímar hér til vinstri þar sem tímarnir verða settir inn jafnóðum. Myndir frá síðasta sunnudag þegar var met mæting yfir 40 manns mættu í vöfflukaffi í blíðunni má finna HÉR

10 júní 2007

Kriki Paradís á jörđ, sumar 2007

08. júní 2007 klukkan 11:50
Kriki er landskiki í landi Vatnsenda við Elliðavatn sem Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu hefur til umráða. Sönn útivistarparadís með aðgengilegum göngustígum og smá athvarfi þar sem allir eru velkomnir.

Sjálfboðaliðar sjá um að hafa opið flesta daga í sumar. Þar eru stígar sem eru aðgengilegir fyrir hjólastóla alveg niður að vatni, þar eru tvær bryggjur. Félagar geta dundað sér við útivist, fuglaskoðun, fiðrildaveiðar, sápukúlublástur, flugdrekaflug, lautarferðir og veiðar svo fátt eitt sé upptalið bara nota hugmyndaflugið.  

Opnunardagar:
  Til að byrja með verður opið þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13.30 til 18.00. 
Föstudaga kl. 11.00 til 20.00
og Sunnudaga kl. 11.00 til 19.00
Lokað mánudaga, fimmtudaga og laugardaga, vegna manneklu.
 
 

Kaffisala og veitingar verða  að mestu með hefðbundnu sniði. En nú verður líka hægt að kaupa ís. Föstudagar verða grilldagar,  kl. 17-19 verða grillaðar pylsur og á sunnudögum kl. 15 –17 verða bakaðar vöfflur. Ath. Við tökum ekki kort. 

Dagskráin er í stöðugri mótun en fylgjast má með henni á hér og á 
www.hbs.sjalfsbjorg.is/ Kort af svæðinu og verðlistar auk ýmsissa gagnlegra upplýsinga eru hér til hliðar á undirsíðum.
Einnig koma hér inn ýmsar hugdettur sem þetta  vaska Krikalið finnur uppá.

Mikil breyting hefur orðið í Krika. Nýja húsið, sem Kópavogsbær  gaf okkur er búið að tengja við það gamla, svo nú er mikið rýmra. Sólpallurinn stækkaður báðum megin við húsið og skjólveggur götumegin. Rafdrifið vinnuborð, sem hentar öllum við bakstur eða hella upp á könnuna. En því miður er enn sama litla snyrtingin, en næsta sumar verða þær 2, önnur fyrir hjólastóla.

Kriki við Elliðavatn er sönn útivistarparadís og tilvalin til að halda  afmælisveislur og aðrar samkundur úti í guðsgrænni náttúrunni. Í Krika er salernisaðstaða á opnunartímum. Ef fólk þarf aðstoðarmenn þarf það að sjá fyrir þeim sjálft. 

Panta verður daga fyrir uppákomur hjá Sjálfsbjörg á höfuðborgasvæðinu Hátúni 12
www.hbs.sjalfsbjorg.is/  eða í síma 551-7868 á skrifstofutíma. Þar má einnig fá félagsskírteini, sem þarf nú að sýna til að fá veiðileyfi hjá okkur í Krika. 
Ath. græna kortið dugir ekki lengur. 

Gleðilegt Krika sumar!

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur