Leit

Velheppnađur bátadagur

19. ágúst 2007 klukkan 23:11

Bátadagurinn í ár tókst mjög vel. Margmenni var við vatnið og uppi í húsi. Vöfflurnar runnu út eins og heitur rjómi. Batadagur 2007
Fleiri myndir frá þessu velheppnaða degi HÉR

BÁTADAGUR, sunnudaginn 12 ágúst

10. ágúst 2007 klukkan 15:24
Hekla og Sigrún Ósk róa um vatnið
Sunnudaginn 12. ágúst nk. á að endurtaka leikinn frá í
fyrra og halda BÁTADAG í Krika við Elliðavatn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland fyrir tveim árum til styrktar Hjálparliðasjóði Sjálfsbjargar, leggur okkur lið enn einu sinni.

Í fyrra kom margmenni og fór á vatnið í hinum ýmsu bátum. Naut náttúrunnar og félagskaparins. Allt tókst eins og best var á kosið því endurtökum við leikinn og höfum svipað snið á deginum.
 

Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að fá heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í nýja húsinu okkar. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.

Tilvalið tækifæri til útiveru og samvista í paradís
Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu KRIKA. Allir eru velkomnir. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði. Ath. tökum ekki kort.
 

Hér á undirsíðunum til vinstri má finna allar nánari upplýsingar um Krika svo sem staðsetningu, verðskrá, náttúru og hvað eina.

Opið verður frá 11.00 til19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Myndir frá bátadeginum í fyrra má sjá
HÉR
 

Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira.

Sjáumst hress

Bátadagur 20 ágúst og opiđ um verslunarmannhelgina

03. ágúst 2007 klukkan 01:48
Ákveðið hefur verið að hafa opið um verslunarmannahelgina, laugardag og sunnudag milli 14.00 og 18.00 kannski lengur ef veður leyfir.

Sunnudaginn 12. ágúst nk. á að endurtaka leikinn frá í fyrra og halda BÁTADAG í Krika við Elliðavatn. 

Opið verður frá 11.00 til19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Myndir frá bátadeginum í fyrra má sjá HÉR 

Nánari upplýsingar hér til vinstri Bátadagur 2007

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur