Leit

Kriki paradís á jörđ

10. júlí 2009 klukkan 10:14
Kriki er landskiki í landi Vatnsenda við Elliðavatn sem Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu hefur til umráða. Sönn útivistarparadís með aðgengilegum göngustígum og smá athvarfi þar sem allir eru velkomnir.

Sjálfboðaliðar sjá um að hafa opið flesta daga í sumar. Þar eru stígar sem eru aðgengilegir fyrir hjólastóla alveg niður að vatni, þar eru tvær bryggjur. Félagar geta dundað sér við útivist, fuglaskoðun, fiðrildaveiðar, sápukúlublástur, flugdrekaflug, lautarferðir og veiðar svo fátt eitt sé upptalið bara nota hugmyndaflugið.


Opnunartímar eru  hér til vinstri sem og leiðarlýsing.

Almennt er þó opið þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 13.00 til 19.00, föstudag kl. 13.00 til 19.00 en þá er grillaðar pylsur kl. 17.00 nema annað sé auglýst. Á laugardögum er opið frá 13.00 til 18.00 og á sunnudögum er opið frá 11.00 til 18.00 kl. 15.00 eru bakaðar vöfflur og seldar með sultu og rjóma. Á mánudögum er lokað.

Það eru Sjálfsbjargarfélagar sem hafa opið í sjálfboðavinnu og allur hagnaður rennur í uppbyggingu á svæðinu.

Verðskrá er hér til vinstri sem og leiðarlýsing og ýmsar upplýsingar um svæðið og náttúruna.
Allir eru velkomnir en hópar eru beðnir um að bóka sig

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur