Leit

Bátadagurinn verđur á laugardaginn 22. ágúst :-)

20. ágúst 2009 klukkan 16:41
Nú hefur Kjartan Jakob metið veðurhorfurnar og ákveðið er að halda Bátadaginn á laugardaginn. Opið verður frá kl. 11.00 til 19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00.

Nánari upplýsingar eru á undirsíðunni hér til hliðar sem nefnist BÁTADAGURINN 22. ágúst 2009

Róum okkur niđur í Krika, BÁTADAGUR

13. ágúst 2009 klukkan 22:22
Sunnudaginn 23. ágúst 2009 stendur til að halda BÁTADAG í Krika við Elliðavatn. Ef veðurspá er betri fyrir laugardaginn 22. ágúst verður Bátadagur þann dag. Verður tekin ákvörðun um endanlega dagsetningu fimmtudaginn 20. ágúst.  Fylgist vel með hér.

Kjartan Jakob Hauksson, sem réri kringum Ísland til styrktar Hjálparliðasjóði Sjálfsbjargar, leggur okkur lið enn einu sinni. Í hitteðfyrra kom margmenni og fór á vatnið í hinum ýmsu bátum. 

Kjartan og félagar sjá um að aðstoða fólk við að komast í bátana ef á þarf að halda. Krikavinirnir sjá um veitingar og annað, sem til þarf. Hægt verður að fá heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í nýja húsinu okkar. Einnig grillaðar pylsur síðdegis. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna. Allir eru velkomnir. Frítt er í bátana, en veitingar seldar á mjög vægu verði.
Ath. tökum ekki kort.

Kriki er með heimasíðu www.kriki.bloggar.is  og þar má finna allar nánari upplýsingar um Krika, staðsetningu, verðskrá, náttúru og hvað eina. Opið verður frá 11.00 til 19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Myndir frá bátadeginum 2006 má sjá HÉR

Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að skoða útivistarsvæðið okkar, paradís Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu.  Gleymum Icesave í smástund, njótum náttúrunnar, fáum okkur vöfflur eða pylsur og róum okkur niður með því að prófa bátana og fleira!

Sjáumst hress – allir velkomnir.

Þeir,sem þurfa hjálp, taki með sér aðstoðarmann, Gott er líka að hafa með sér handklæði og föt til skiptanna.

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur