Leit

Kriki rokkar

29. júlí 2010 klukkan 12:34
Í gær funduðu Krikavinir sem er hópur sjálfboðaliða sem sér um að manna Krikavaktirnar. Vel gekk að skipta milli sín dögunum í ágúst. Opnunartímarnir eru komnir hér til vinstri á síðunni. Rúmlega 1200 manns hafa þegar heimsótt Krika í sumar og veðrið leikið við okkur.
 
Tvær uppákomur eru þegar ákveðnar í ágúst en hver veit nema þær verði fleiri.

Miðvikudaginn 18. ágúst kl 17.00 til 19.00 ætlar Jóna Marvins að elda hina víðfrægu kjötsúpu sína og selja til styrktar uppbyggingunni í Krika. Það er nánari auglýsing hér til vinstri en það þarf að bóka sig fyrirfram í súpuna.

Ása Hildur ætlar svo að endurtaka Prjónadaginn sem tókst svo vel í júlí. Hann verður laugardaginn 21. ágúst kl. 13.00 til 18.00.

Allir eru alltaf velkomnir í Krika sem við teljum Paradís á jörð :-)

Sjá nánar um opnunartíma hér til vinstri.

Sumar og stuđ í Krika

17. júlí 2010 klukkan 20:58
Frábær mæting hefur verið í Krika í sumar og Krikavinir uppátækjasamir um ýmsar uppákomur.

Opið er mánudaga til fimmtudag frá kl. 13.00 til 18.00
Á föstudögum frá 13.00 til 19.00 þá er hið sívinsæla pylsugrill kl. 17.00.
Á laugardögum er opið frá 13.00 til 18.00.
Og á sunnudögum er opið frá 11.00 til 18.00 þá er vöfflukaffi kl. 15.00.

Allir eru alltaf velkomnir í Krikann, sérstakar uppákomur er auglýstar hér og á facebookarsíðunni okkar.
Hópur sjálfboðaliða sér um að halda opið og skiftast á vaktinni. Allur ágóði af starfseminni rennur til uppbyggingar starfsins.

Prjónadagur á laugardaginn

15. júlí 2010 klukkan 08:28

Laugardaginn 17. júli kl. 13—18 ætlar Ása Hildur að hafa prjónadag í Krika. Þá eru allir hvattir til að koma með prjóna eða annað handverk. Hægt verður að prjóna bæði úti á palli, úti í náttúrinni, við vatnið eða bara inni allt eftir veðri.

Ása Hildur ætlar að koma með garn og prjóna ef einhver vill kennslu eða hjálp við prjónaverkefni er það velkomið. Einnig kemur hún með eitthvað af prjónablöðum, ma. gömul blöð sem amma hennar átti. Þá verður hún með prjónamerki til sölu. Við ætlum að hafa þetta allt mjög óformlegt og umfram allt skemmtilegt

Allir velkomnir
og endilega takið með ykkur gesti. Hægt verður að kaupa drykki og íspinna á staðnum. Ath. Tökum ekki kort.

Úti er gott útisvæði fyrir krakkana kjörið að láta þau taka með sér háf til að fara á fiðrildaveiðar eða sílaveiðar á meðan. Nánari uppl. og leiðarlýsing er á www.kriki.bloggar.is

♪♪♪ Ţađ er BÁTADAGUR í dag ♪♪♪

11. júlí 2010 klukkan 08:45
Nú er það ljóst að BÁTADAGURINN er í dag. Sólin er komin upp og ætlar að vera hjá okkur í allan dag skv. spám Veðurstofu íslands. Húsið opnar kl. 11.00. En bátarnir verða í gangi milli kl. 13.00 ot 17.00. Í sumarhúsinu verða bakaðar vöfflur og seldir drykkir og ís. Seinni partinn grillum við svo pylsur.

Allir eru velkomnir það kostar ekkert að fara í bátana og gott aðgengi er á bryggjurnar fyrir hjólastóla og þeir sem þurfa hjálp í bátana fá hana.

Það er Kjartan Jakob Hauksson kafari með meiru og vösk sveit með honum sem sér um bátana og öryggismálin. Krikavinir sjá svo um að kaffiveitingar og annað sem til þarf.

Ath. að við tökum ekki posa.

Bátadagurinn verđur á Sunnudaginn!

08. júlí 2010 klukkan 15:12
Samkvæmt veðurspám í dag þá verður bátadagurinn á Sunnudaginn! Það er
endanleg dagsetning. Það skipast samt óvenju snöggt veður í lofti þessa
dagana. Vonandi breytist þetta ekki héðanaf... :-)

Hinn árlegi bátadagur verđur haldinn í Krika viđ Elliđavatn um nćstu helgi!

05. júlí 2010 klukkan 18:36

Þannig að nú er um að gera að bretta upp ermar og skálmar og láta vaða í einn léttan róður um Elliðavatn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland árið 2005, verður okkur til halds og trausts sem fyrr.


Undanfarin ár hefur fullt af fólki nýtt sér leiðsögn þessa ,,róandi“ manns og hefur hann gert allt til þess að hver og einn geti farið í bátsferð um vatnið. Allt hefur hingað til tekist vel og þessi atburður verið einn sá vinsælasti í Krika á hverju ári.


ATHUGIÐ: Þessu verður þannig háttað í þetta skiptið að bátadagurinn verður haldinn annaðhvort á laugardeginum eða sunnudeginum, eftir því sem betur viðrar. Endanleg dagsetning verður auglýst á fimmtudeginum 8. júlí hér á síðunni. (Eins og staðan er núna miðvikudag klukkan 14:58, þá eru meiri líkur á að bátadagurinn verði á laugardaginn.)


Einnig verður hægt að hringja á fimmtudeginum og föstudeginum í síma 899-2764 til að fá nánari upplýsingar.

Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að fá heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í nýja húsinu okkar. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.


Kriki, útivistarsvæði Sjálfsbjargar félags fatlaðra hefur verið opinn á hverju sumri þar sem allir geta komið og notið þeirrar náttúru sem þetta einstæða vatn hefur upp á að bjóða.


Allir eru velkomnir á þennan bátadag. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði. Ath. tökum ekki kort. 

Opið verður frá 11.00 til19.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00.

Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira. Grillaðar verða pylsur og seldar ásamt öðrum veitingum á mjög
vægu verði

Sjáumst hress

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur