Regluleg opnun hefst 1. júní
Vaskir sjálfboðaliðar ætla að hafa opið í Krika í allt sumar. Opið verður alla daga frá kl 13.00 til kl. 18.00 nema föstudaga þá verður opið til kl. 19.00.
Kriki er landskiki í landi Vatnsenda við Elliðavatn, sem Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu hefur til umráða. Sönn útivistarparadís með aðgengilegum göngustígum niður að vatni og smá athvarfi, þar sem allir eru velkomnir. Sjálfboðaliðar sjá um að hafa opið alla daga vikunnar í sumar. Þar eru og tvær bryggjur. Félagar geta dundað sér við útivist af ýmsu tagi, bara nota hugmyndaflugið.
Kaffisala og veitingar verða að mestu með hefðbundnu sniði. Líka er hægt að kaupa ís, gos og sælgæti og merkjasöluvöru Sjálfsbjargar og rennur allur ágóði til Krika. Á föstudögum kl. 17 - 18.30 verða grillaðar pylsur og á sunnudögum kl. 15 - 17 verða bakaðar vöfflur. Ath. Við tökum ekki kort.
Í Krika eru 2 snyrtingar, önnur aðgengileg fyrir hjólastólanotendur. Kriki við Elliðavatn er sönn útivistarparadís og tilvalið að vera þar. Koma með nesti með sér eða kaupa það sem til er eða grilla á pallinum. Ef fólk þarf aðstoðarmenn, þarf það að sjá fyrir þeim sjálft.
Hægt er að panta daga fyrir uppákomur og hópa hjá Kristínu R. Magnúsdóttur í síma 865-6706 eða stinar@isl.is
Veiðibók er á staðnum. Aðeins fullgildir félagar í Sjálfsbjörg fél.fatl.á höfuðb.sv., fá veiðileyfi hjá okkur. Aðrir verða að fá leyfi t.d. í Kríunesi. Kvittanir fyrir félagsaðild, fást á skrifstofu Sjálfsbjargar á skrifstofutíma.
Hér á síðuna verða svo settir inn aðburðir þegar eitthvað er í gangi.
Nú er þegar ákveðið að vera með Sveitasúpu 9. júní og Prjónadag 25. júní sjá nánar hér til vinstri.
Allir eru velkomnir í Krikann
Tökum forskot á sćluna og höfum opiđ sunnudaginn 29. maí
Regluleg opnum hefst þó ekki fyrr en 1. júní en eftir það verður opið alla daga frá kl. 13.00 til 18.00 nema á föstudögum þá verður opið til kl. 19.00. Dagskrá verður með hefðbundnu sniði. Vöfflukaffi á sunnudögum kl. 15.00 og pylsupartý á föstudögum kl. 17.00.
Nokkrar uppákomur verða í sumar, fyrst verður Jóna Marvins og vaskir sjálfboðaliðar með Sveitasúpudag til styrktar Krika 9. júní sjá nánar í auglýsingu í dálknum hér til vinstri.
25. júní ætlar Ása Hildur að vera með Prjónadag en það vakti mikla lukki í fyrra. Nánar auglýst síðar.
Verðskrá má sjá hér til vinstri sem og leiðarlýsingu og fleiri fróðleik um Krikann, svæðið og starfsemina þar.
Vonumst til að sjá sem flesta í sumar
Kriikavinir