Prjónadagur á laugardaginn
Laugardaginn 25. júní kl. 13-18 ætlar Ása Hildur að endurtaka leikinn frá fyrra og hafa prjónadag í Krika við Elliðavatn. Þá eru allir hvattir til að koma með prjóna eða annað handverk. Hægt verður að prjóna bæði úti á palli, úti í náttúrinni, við vatnið eða bara inni allt eftir veðri.
Ása Hildur ætlar að koma með garn og prjóna ef einhver vill kennslu eða hjálp við prjónaverkefni er það velkomið. Einnig kemur hún með eitthvað af prjónablöðum og bókum. Þá verður hún með prjónamerki til sölu. Við ætlum að hafa þetta allt mjög óformlegt og umfram allt skemmtilegt
Allir velkomnir og endilega takið með ykkur gesti. Hægt verður að kaupa drykki og íspinna á staðnum. Ath. tökum ekki kort.
Útivistarsvćđi fatlađra í Krika viđ Elliđavatn

Sumarið 1994 vaknaði hugmynd að koma upp útivistarsvæði fyrir fatlaða í nágrenni Reykjavíkur, þar sem fatlaðir og hreyfihamlaðir gætu stundað veiðar og útiveru.
Þegar Magnús Hjaltested bóndi á Vatnsenda við Elliðavatn frétti af þessum áformum hafði hann samband við stjórn félagsins og bauð Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu afnot af landi við Vatnsenda.
Er skemmst frá því að segja að þegar þessi höfðinglega gjöf var fengin var strax farið af stað við undirbúning og gróðursetti þáverandi forseti Íslands frú Vigdís Finnbogadóttir fyrstu plönturnar sumarið 1995.
Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt var fengin til að skipuleggja svæðið og var sérstök áhersla lögð á að landið væri aðgengilegt fötluðum þar sem þeir gætu stundað útiveru og veiðar.
Lagðir hafa verið hellulagðir stígar og hlaðnar upp bryggjur sem hægt er að komast um á hjólastólum. Við gróðursetningu og stígagerð unnu sjálfboðaliðar svo og fólk sem var á skrá yfir atvinnulausa í Kópavogi sem vann mikið við þessar framkvæmdir sem nokkurs konar atvinnuuppbótar vinnu. Þá unnu þarna krakkar úr Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 1996.
Bráðabirgðahús var sett á lóðina og smíðaður pallur í kringum það.
Í júní 1998 var svæðið formlega opnað og hlaut það nafnið Kriki.
Oflug starfsemi hefur verið í Krika undanfarin sumur og sumarið 2006 var bætt við húsakostinn í Krika.
Veturinn 2007-2008 var unnið að miklum endurbótum í Krika sem gjörbreyttu aðstöðunni þar til hins betra.
Hekl og prjónakennsla alla mánudaga í júní
Alla mánudaga í júní frá kl. 13.00 til 18.00 ætlar Ása Hildur að vera til taks ef einhver vill kennslu í hekli eða prjónaskap. Garn og prjónar á staðnum.
Í Krika erum við líka komin af stað með samprjónsverkefni. Fyrirmyndin kemur frá Sjálfsbjörg í Vestmannaeyjum. Við ætlum að hafa frammi prjónakörfu með garni, heklunálum og prjónum þannig að allir geti gripið í verkefnið þegar þeir eru í stuði. Ætlunin er að búa til teppi sem verður samsett úr fjölmörgum bútum sem allir eiga að vera 12 sm á kant. Aðferðin er frjálst. Gott væri ef þeir sem eru aflögufærir um garn eða áhöld leggi þau til í körfuna góðu.
Opið er nú alla daga frá kl. 13 til 18 nema föstudaga þá er opið klst lengur.