Leit

Hinn árlegi bátadagur verđur haldinn í Krika viđ Elliđavatn 13. eđa 14. ágúst!

29. júlí 2011 klukkan 12:04

Bátafjör 

Þannig að nú er um að gera að bretta upp ermar og skálmar og láta vaða í einn léttan róður um Elliðavatn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland árið 2005, verður okkur til halds og trausts sem fyrr. Undanfarin ár hefur fullt af fólki nýtt sér leiðsögn þessa ,,róandi" manns og hefur hann gert allt til þess að hver og einn geti farið í bátsferð um vatnið. Fatlaðir fá aðstoð við að fara í bátana og á vatnið og eru þeir sérstaklega hvattir til að fjölmenna og njóta traustra handtaka Kjartans og hans manna. Göngustígar eru aðgengilegir niður að vatni og í húsinu er klósett aðgengilegt fyrir hreyfihamlaða. Allir eru velkomnir ungir sem gamlir. Allt hefur hingað til tekist vel og þessi atburður verið einn sá vinsælasti í Krika á hverju ári.

ATHUGIÐ: Þessu verður þannig háttað í þetta skiptið að Bátadagurinn verður haldinn annaðhvort á laugardeginum eða sunnudeginum, eftir því sem betur viðrar. Endanleg dagsetning verður auglýst á fimmtudeginum 11. ágúst hér  og á facebook. Hér til vinstri er einnig að finna leiðarlýsingu. Þá verður hægt að hringja á fimmtudeginum og föstudeginum í síma 899-2764 til að fá nánari upplýsingar.

Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að kaupa heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í húsinu okkar. Seinnipartinn verða síðan grillaðar pylsur. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.

Kriki, útivistarsvæði Sjálfsbjargar félags fatlaðra hefur verið opinn á hverju sumri þar sem allir geta komið og notið þeirrar náttúru sem þetta einstæða vatn hefur upp á að bjóða.  Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði og allur ágóði fer til uppbyggingar í Krika  Ath. við tökum ekki kort. 

Opið verður frá 12.00 til 18.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00.   Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira.

 Sjáumst hress  Krikavinir

Bátadagur seinnipart sumars

11. júlí 2011 klukkan 00:18
Mikið fjör er flesta daga í Krika þetta sumarið og sjálfboðaliðarnir uppátektarsamir. Stærsti atburður sumarsins og sá sem fastagestir hlakka alltaf mikið til er Bátadagurinn. Kjartan Jakob Hauksson sem réri kringum Ísland til styrktar Sjálfsbjörg hefur komið einu sinni á sumri með fullt af bátum og leyft öllum sem vilja að sigla um Elliðavatn undir vökrum augu hans og hjálparmanna hans. Fyrirhugað er að halda Bátadaginn í ár seinnipart sumars. Dagsetningin er enn á reiki en fer mikið eftir veðurspánni, en hún verður auglýst hér svo fylgist vel með síðunni.

Annars er föst opnun alla daga frá kl. 13.00 til kl. 18.00 nema föstudaga þá er opið til kl. 19.00. Á sunnudögur er alltaf vöfflukaffi kl. 3 og á föstudögum er pylsupartý kl. 17.00 til 18.30. Á mánudögum er Ása Hildur með prjónakennslu en að öðru leiti er dagskráin opin fyrir allt mögulegt sem sjálfboðaliðarnir taka sér fyrir hendur.

Við erum að sjálfsögðu líka á facebook svo endilega gerist vinir okkar þar til að fylgjast enn betur með.

Krikaknús á ykkur

Lokađ vegna jarđafarar til kl. 4 föstudaginn 8. júlí

06. júlí 2011 klukkan 13:14
Í sumar er opið alla daga frá kl. 13.00 til 18.00 nema föstudaga þá er opið til kl. 19.00. Næsta föstudag þann 8. júlí er þó ekki opnað fyrr en kl. 16.00 vegna jarðafarar.
Grillað verður kl. 17.00 til 18.30.
Allir velkomnir alla daga

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur