Vel heppnađir dagar undanfariđ og nú er nýjasta markiđ Kjötsúpukvöld 3. sept.
Bátadagurinn var einstaklega vel heppnaður og veðurblíðan lék við okkur. 111 skráðu nöfn sín í gestabókina góðu en erfitt er að meta hver fjöldinn var. Bátarnir voru í gangi allan daginn og alltaf biðröð í þá. Krikavinir bökuðu vöfflur á fjögur vöfflujárn í 4 tíma og svo var grillað meðan einhver tók við.
Við viljum þakka öllum sem komu og nutu með okkur og þó sérstaklega Kjartani Jakob Haukssyni sem er potturinn og pannann í þessu og sér um bátana og bryggjuna með bros á vör. Einnig viljum við þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem gerðu okkur kleift að hafa daginn svona glæsilegan.
En við erum ekki hætt enn verur opið alla daga í ágúst frá kl. 13 til 18 og 19 á föstudögum. Hefðbundin dagskrá, Vöfflurfjör á sunnudögum milli 3 og 5, Pylsupartý á föstudögum frá kl. 17 til 18.30. Prjónafjör á mánudögum og Kærleikur og hugguleg heit alla daga. Allir eru alltaf velkomnir.
3. sept. nk. verður Jóna Marvins og Krikavinir með fjáröflun. Jóna eldar hina margrómuð íslensku kjötsúpu sína og hún seld til fjáröflunar. Súpan mun kosta 1000 kr. og 800 kr. fyrir börn, ábót, kaffi og brauð fylgja. Til að vita hversu mikið magn Jóna þarf að elda er nauðsynlegt að skrá sig fyrir 1. sept. í sima 551-7868 eða senda tölvupóst á netfangið annakristin@sjalfsbjorg.is
Í Krika er allt unnið í sjálfboðavinnu og ágóðinn fer óskiftur í framkvæmdir við Krikann okkar dásamlega.
Ath. að við tökum ekki kort.
Allir eru alltaf velkomnir
Krikavinir
Ţá er ţađ ákveđiđ Bátadagurinn verđur á laugardaginn :-)
Kjartan og félagar sjá um bátana og öryggismálin, Krikavinirnir sjá um veitingar og annað sem til þarf. Hægt verður að kaupa heitar vöfflur og ýmislegt góðgæti í húsinu okkar. Seinnipartinn verða síðan grillaðar pylsur. Vonandi fjölmennið þið og mætið með alla fjölskylduna.
Kriki, útivistarsvæði Sjálfsbjargar félags fatlaðra hefur verið opinn á hverju sumri þar sem allir geta komið og notið þeirrar náttúru sem þetta einstæða vatn hefur upp á að bjóða. Frítt er í bátana en veitingar seldar gegn vægu verði og allur ágóði fer til uppbyggingar í Krika Ath. við tökum ekki kort.
Opið verður frá 12.00 til 18.00 en bátarnir verða í gangi frá kl. 13.00 til 17.00. Tilvalinn dagur fyrir fjölskylduna að kíkja, njóta náttúrunnar, prófa bátana og fleira.
Sjáumst hress
Krikavinir