Leit

súpa


Hin margrómaða og gómsæta íslenska kjötsúpa Jónu Marvinsdóttur verður laugardaginn 3. sept. kl 16.00 til 18.00 í Krika við Elliðavatn

Sveitasúpan kostar aðeins 1000 kr og 800 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. Brauð og kaffi er innifalið í verðinu. Og að sjálfsögðu verður hægt að fá ábót.

Í Krika er allt unnið í sjálfboðavinnu og allur ágóði fer óskiftur í framkvæmdir við Krikann og er súpan fjáröflun fyrir það.

Ath. að það þarf að panta súpu síðasta lagi miðvikudaginn 31. ágúst. Svo við vitum hversu mikla súpu þarf að elda. Tekið er við pöntunum í sima 551-7868 og á netfangið annakristin@sjalfsbjorg.is

Ath. að venju tökum við ekki kort.

Krikavinir

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur