Lífríki Elliðavatns
Elliðavatn er í flokki lindavatna líkt og Mývatn og Þingvallavatn og eru slík vötn yfirleitt lífríkustu vötn landsins. Elliðaár og Elliðavatn ásamt votlendinu ofan vatnsins er mjög gróskumikið vistkerfi.
Í vatnakerfinu lifa allar fimm tegundir villtra ferskvatnsfiska á Íslandi, sem eru; bleikja, lax, urriði, áll og hornsíli. Elliðaár eru meðal bestu laxveiðiáa landsins og þar veiðast 900- 1.400 laxar á ári. Í Elliðavatni er góð silungsveiði og er stangveiði mikið stunduð.
Á vatnasvæðinu hafa verið skráðar 28 fuglategundir, þar af 9 sjaldgæfar, sem byggja afkomu sína að öllu eða verulegu leyti á fæðu og varpstöðum í tengslum við vatnakerfið. Vegna þess hve Elliðavatn er grunnt er undirstaðan í lífrænni framleiðslu að mestu bundin við botnlífverur, bæði plöntur og smádýr.
Vatnið er mjög gróðurríkt og plöntur eins og síkjamari og gras- og hjartanykra eru áberandi síðla sumars þegar þær blómstra við vatnsborðið. Af smádýrum eru mýlirfur, vorflugulirfur og vatnabobbar mest áberandi á grýttu fjörusvæði, en utar á mjúkum botni taka við ertuskeljar og smágerðir ánamaðkar.
Öll þessi dýr eru eftirsótt af silungi og vatnafuglum. Elliðavatn hefur verið rannsakað í verkefninu „Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra vatna“, sem Náttúrufræðistofa Kópavogs stendur að ásamt fleirum rannsóknastofnunum.