Saga Elliðavatns
Áður en miðlunarstífla var reist við Elliðavatn á árunum 1924-25 skipti Þingnes, sem gengur út í vatnið að sunnanverðu, vatninu í Vatnsendavatn og Elliðavatn.
Þá var vatnið um helmingi minna en nú. Með tilkomu stíflunnar stækkaði vatnið og er það nú 1,8km2 að flatarmáli. Í dag tilheyra um 40% af vatninu Kópavogi en 60% tilheyra Reykjavík.